Hjá Bod.is viljum við gera það einfaldara og fallegra að bjóða í veislur og viðburði. Við bjóðum upp á stafræna lausn þar sem viðskiptavinir geta pantað sérsniðið boð, deilt því með link og haldið utan um gesti og staðfestingar á einum stað.

Markmið okkar er að sameina fallega framsetningu og praktískt skipulag í einni þjónustu. Með Bod.is færðu nútímalegt boð sem er auðvelt að senda áfram, fallegt að skoða og þægilegt í notkun fyrir bæði veisluhaldara og gesti.

Við trúum því að undirbúningur viðburða eigi að vera einfaldari, skipulagðari og minna stressandi. Þess vegna leggjum við áherslu á notendavæna þjónustu, skýrt ferli og lausnir sem hjálpa fólki að halda betur utan um stóra daginn.

Hvort sem um er að ræða fermingu, afmæli, brúðkaup, skírn, útskrift eða annan sérstakan viðburð, þá er Bod.is hannað til að gera boðið bæði fallegt og þægilegt.